27.6.05

by the way

Ég komst ekki inní Kennó en ætla að sækja ótrauð um á næsta ári huh. Svo er bara spurning um að taka einhverja framhaldsskólaáfanga til að láta pappírana líta betur út. Hugsa að ég skelli mér í einhverskonar fjarnám/kvöldskóla.

En nóg um það, góða nótt

Var að leika mér að taka nokkur test...

Hmmm
Slow and Steady
Your friends see you as painstaking and fussy.

They see you as very cautious, extremely careful, a slow and steady plodder.

It'd really surprise them if you ever did something impulsively or on the spur of the moment.

They expect you to examine everything carefully from every angle and then usually decide against it.



Veit ekki alveg sko en það er ykkar að dæma hvort þetta á við um mig eða ekki, ég er nú ekki alveg á því.

Og annað:





You Are 32 Years Old



32





Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.


Ok ekki svo langt frá en samt...ég er ekki nema 26 ára...

12.6.05

On the blog again....

Jamm og jæja. Ekki á það nú fyrir mér að liggja að verða neitt sérstaklega afkastamikill bloggari en ég reyni. Af okkur litlu sætu fjölskyldunni er það að frétta að við náðum okkur í leiguíbuúð sem uppfyllir öll okkar skilyrði. Við erum sumsé flutt í stóra 3. herbergja íbúð og unum hag okkar vel það sem af er. Við sumsé stækkuðum við okkur um heila 76 fm og geri aðrir betur, úr 8 fm herbergi hjá tengdó og í 84 fm hér. Hekla greyið hefur á sinni stuttu ævi flutt ansi oft, ég var að telja þetta í huganum og þetta er nokkurn veginn svona:
Hverfisgata 34
Lindargata 56
Háberg 8
Starrahólar 8
Árvellir 2, Hnífsdal
Sléttuvegur 7/Háberg 8 (til skiptis meðan foreldrar hennar voru skilin)
Starrahólar 8
Orrahólar 3
Vesturberg 78
Háberg 8
Núverandi heimilisfang
Og barnið er ekki nema tæplega 8 ára gamalt.....
Þetta er soldið mikið, vonandi fáum við að vera hér sem lengst enda orðin langþreytt á flutningum.

Heilræði fyrir íbúðaleigjendur:

1. Þú verður að biðja leigusalann þinn um geðheilbrigðisvottorð
2. Þú verður að fullvissa þig um að hann sé í traustu hónabandi/sambandi.
3. Hann má ekki eiga frændur/frænkur/vini/eða ættingja yfir höfuð sem ekki eiga eigið húsnæði.
4. Hann má heldur ekki eiga börn sem komin eru á þann aldur að vilja fara að búa.
5. Gott er að eiga uppblásin húsgögn ef þu skyldir þurfa að flytja oft.
6.......Þetta reddast allt er rétta hugarfarið þegar allt klikkar, Pollíönnuleikur er afar mikilvægur í þessum aðstæðum.

Að þessu sögðu kveð ég